Þú sérð loftið ekki, en það hefur bein áhrif á hvernig fólki líður og hvernig því gengur í starfi.

Loftgæði, rakastig og hitastig hafa mælanleg áhrif á hugsun, heilsu og framleiðni. Flest fyrirtæki mæla þetta ekki og vanmeta áhrifin. Lota gerir hið ósýnilega sýnilegt.

Loftið sem við öndum að okkur í vinnunni, í skólanum eða heima er sjaldnast efst í huga, þar til fólk fer að finna fyrir viðvarandi þreytu eða eitthvað fer að valda óþægindum. Koltvísýringur, rakastig, hitastig og rokgjörn efni eru allt þættir sem hafa mælanleg áhrif á heilsu og frammistöðu, jafnvel þótt við tökum ekki strax eftir þeim. Lota kortleggur loftgæði í rýminu, greinir hvað hefur áhrif á þau og hjálpar þér að breyta vandamáli í styrkleika.

Váhrifavaldur vs. áhrifavaldur

Léleg loftgæði draga hljóðlega úr orku, einbeitingu og frammistöðu. Þegar loftræsting er ófullnægjandi, rakastig of lágt eða hitastig ekki í jafnvægi finnur fólk fyrir áhrifunum áður en það sér orsökina.Lota greinir það sem ekki sést og hjálpar þér að breyta loftgæðum úr falinni hindrun í sýnilegan styrk.

Þreyta og þyngsli

Léleg loftgæði eru oft ósýnilegur dragbítur á líðan og frammistöðu. Þegar koltvísýringur safnast upp og loftræsting dugar ekki til minnkar einbeiting, þreyta eykst og afköst dragast niður án þess að orsökin sé augljós.

Lota gerir hið ósýnilega sýnilegt. Við kortleggjum loftgæði rýma, finnum það sem er að hafa áhrif og breytum niðurstöðunum í skýrar, framkvæmanlegar úrbætur.

Of þurrt loft og veikindi

Á íslenskum vetrum verður loft innandyra oft svo þurrt að það hefur áhrif á slímhúðir, vellíðan og varnir líkamans. Lágt rakastig getur aukið ertingu í augum, nefi og hálsi og dregið úr náttúrulegri vörn gegn sýkingum.

Rannsóknir benda til að rétt rakastig styðji við öndunarfæraheilbrigði, líðan og geti jafnvel tengst minni veikindafjarvistum á vinnustöðum.

Of heitt - og afköstin detta

Þegar hitastig í skrifstofuumhverfi fer yfir það sem hentar best fyrir vinnu dregur úr einbeitingu, ákvarðanataka hægist og andleg þreyta eykst. Áhrifin koma smám saman og því verður of mikill hiti oft dulinn dragbítur á framleiðni og vellíðan.

meðmæli

Orð frá viðskiptavinum okkar

"VSÓ Ráðgjöf hefur til margra ára átt gott samstarf við Lotu í fjölmörgum og fjölbreyttum verkefnum, bæði á Íslandi og í Noregi.Starfsfólk Lotu er lipurt í samskiptum og viðmót þeirra ætíð jákvætt og faglegt."
"Við höfum átt í góðu samstarfi við Lotu. Starfsfólk er lausnamiðað og vinnur að sameiginlegu markmiði."
"Reykjanesbær hefur átt farsælt samstarf við Lotu í nokkrum mikilvægum verkefnum. Við erum afar ánægð með þá faglegu, nákvæmu og tímanlegu þjónustu sem starfsmenn Lotu veita. Þeir hafa reynst traustir samstarfsaðilar sem leggja sig fram um að mæta þörfum okkar með metnaði og virðingu."
„Við hjá exa nordic höfum átt farsælt samstarf við Lotu verkfræðistofu um verkefni af fjölbreyttum toga. Má þar nefna hönnun á Svansvottuðum leikskóla í Urriðaholti, endurnýjun á vindmyllum við Þykkvabæ, bílastæða- og tæknihús NLSH, og hönnun á nýju öryggisfangelsi að Stóra Hrauni. Þar til viðbótar höfum við tengst fjölmörgum samkeppnum og ýmsum minni verkefnum sem hafa gengið mjög vel.“
"Arkís arkitektar og Lota hafa átt langt og árangursríkt samstarf í mörgum verkefnum í gegnum árin. Slíkt samstarf skiptir okkur miklu máli og er lykilatriði í hönnun flókinna mannvirkja. Starfsfólk fyrirtækisins er reynslumikið og með góða sérfræðiþekkingu sem stuðlar að skilvirku og markvissu samtali í hönnunarferlinu."
"Við hjá HJARK áttum mjög gott samstarf við Lotu við hönnun leikskólans Urriðabóls II í Urriðaholti, sem er fyrsti svansvottaði leikskóli landsins. Þar sá Lota um rafmagns- og lýsingar hönnun."
"Það hefur verið okkur mikil ánægja að eiga samstaf við Lotu, öll samskipti fyrsta flokks og verkefnin leyst af mikilli fagmennsku. Kærar þakkir fyrir það."
"StormOrka ehf. hefur starfað með Lotu um árabil og hefur ætíð ríkt mikil ánægja með faglega sem og liðlega þjónustu stofunnar. Lota er stofa sem við treystum."
"Það sem mér finnst mikilvægast sem einkaaðili, að það sé komið fram við mann sem slíkan og að manni líði eins og maður sé að fá það sem borgað er fyrir. Það fæ ég frá ykkur."
"Það hefur verið frábært að vinna með sérfræðingum Lotu við þróun á sjálfsafgreiðslustöðvum Pikkoló undanfarin ár. Framúrskarandi þjónusta í alla staði!" 
VSO
lbj
rnb
Exa nordic
Arkis
HJARK
KFUM
Storm Orka
Tier
Pikkolo
Senda ábendingu

Viltu benda á þætti í innivist sem gætu haft áhrif á starfsfólk?

Hér geturðu sent stutta lýsingu á aðstæðum á vinnustaðnum, til dæmis varðandi loftgæði, lýsingu eða hljóðvist.

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.