Hljóðvist snýst ekki bara um hvort rými sé hávaðasamt. Hún snýst um hvernig hljóð berst, endurkastast og safnast fyrir og hvernig það mótar upplifun fólks af rýminu. Hljóðáreiti sem við tökum ekki alltaf eftir getur samt bitnað á frammistöðu, samskiptum og líðan. Sérfræðingar Lotu greina hljóðvistina og hjálpa þér að snúa henni úr váhrifavaldi í áhrifavald.
Váhrifavaldur vs. áhrifavaldur
Slæm hljóðvist skiptir meira máli en margir gera sér grein fyrir. Í hávaðasömum rýmum hækkar fólk raddirnar til að heyrast betur. Það eykur hljóðstigið enn frekar og kallar á enn meiri raddbeitingu. Þessi vítahringur veldur þreytu og pirringi og getur leitt til samskiptavanda, misskilnings og lakari frammistöðu.
Góð hljóðvist skapar hins vegar aðstæður þar sem fólk getur unnið, átt samskipti og einbeitt sér með meiri ró og skýrleika.


Skert einbeiting
Þegar hávaði er viðvarandi fer orka heilans í að sía út truflanir í stað þess að nýtast í verkefnið sjálft. Það birtist sem þreyta og skert einbeiting, sérstaklega í nákvæmnisvinnu. Þetta er váhrifavaldur sem sést lítið en finnst skýrt í daglegri vinnu.
Misskilningur í samskiptum
Léleg hljóðaðgreining á fundum, í kennslu og í samskiptum milli deilda leiðir auðveldlega til misskilnings og endurtekinna útskýringa. Oft er vandinn rakinn til annarra orsaka, þó hljóðvistin sé í raun váhrifavaldurinn í bakgrunni.
Uppsöfnuð streita
Hávaði er streituvaldur jafnvel þótt við séum ekki alltaf meðvituð um hann. Þegar rýmið krefst stöðugrar aðlögunar safnast álagið upp og setur mark sitt á bæði líðan og frammistöðu. Lota hjálpar þér að breyta rými sem vinnur gegn fólki í rými sem styður við það.
Orð frá viðskiptavinum okkar
Viltu benda á þætti í innivist sem gætu haft áhrif á starfsfólk?
Hér geturðu sent stutta lýsingu á aðstæðum á vinnustaðnum, til dæmis varðandi loftgæði, lýsingu eða hljóðvist.









